Vörulýsing
Smokey Eye 25 augnhárin eru þétt og óregluleg og gefa augunum „smokey“ útlit á augabragði. Augnhárin eru með styttra bandi, en það er ¾ af lengd venjulegra gervi augnhára. Þau henta sérstaklega vel fyrir byrjendur, þar sem auðveldara er að setja þau á sig en augnhár með lengra bandi. Hægt að nota augnhárin í allt að 5 skipti og með augnhárunum fylgir latex frítt augnháralím sem endist í allt að 18 klst.
Notkunarleiðbeiningar
1 – Mátið augnhárin við augun og klippið þau til svo þau passi umgjörð á þínum augum. Best er að klippa alltaf af ytri krók augnháranna til að halda formi augnháranna.
2 – Berið límið á bandið á augnhárunum
3 – Bíðið í um 20-30 sek eða þar til límið byrjar að þorna
4 – Setjið augnhárin upp við rót þinna augnhára og leggðu þau eins þétt upp við rótina og þið komist.
5 – Lagfærið augnhárin svo þau falli alveg að ykkar augnlokum
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.