Vörulýsing
Gefðu augnhárunum meiri lengd, þykkt og lyftingu sem endist í yfir 24 klukkustundir. Grunnurinn er svartur og umlykur hvert augnhár. Formúlan inniheldur blöndu af þrúgukjarna- og arganolíu (sem eru rík af omega-3 og omega-9 fitusýrum) sem næra augnhárin. Foreplay Lash Primer hjálpar augnhárunum að halda sveigju sinni yfir daginn og fram á kvöld. Notaðu hann undir uppáhalds maskarann þinn fyrir enn meiri fyllingu og lengd eða einan og sér þegar þú vilt náttúrulegra útlit. Það eina sem er betra en Better Than Sex er… Foreplay!
Notkunarleiðbeiningar
Skref 1: Berið grunninn á hrein og þurr augnhár. Setjið burstann við rót augnháranna og greiðið hann upp eftir þeim með sikk sakk hreyfingum. Endurtakið 10–15 sinnum á hvoru auga. Skref 2: Bíðið í allt að 10 sekúndur þar til grunnurinn hefur þornað. Skref 3: Berið ykkar uppáhalds maskara, eins og Better Than Sex Mascara, yfir grunninn til að fá hámarks lyftingu, lengd og þykkt.
Hvernig fjarlægir þú grunninn?
Í lok dags skal fjarlægja grunninn með bómullarskífu vættri með mildum farðahreinsi fyrir vatnsheldan augnfarða. Strjúkið varlega niður eftir augnhárunum þar til allur augnháragrunnurinn er farinn af.

















Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.