Vörulýsing
Hydra-Global er öflug og rakagefandi húðvara sem dregur úr ásýnd öldrunarmerkja á húðinni. Formúlan er hönnuð til að veita alhliða lausn vegna ofþornunar húðarinnar. Krem-gelkennd áferð kremsins er fljótandi og mött. Hydra-Global inniheldur blöndu af ilmkjarnaolíum (majóram, lavender og salvía), virkum efnum úr plöntum (padína-þari, þrenningarfjóla og kastanía) auk steinefna (malakít) sem vinna á 3 stigum til að endurheimta náttúrulegt rakajafnvægi húðarinnar og endurræsa rakavirkni djúpt inni í húðinni.
Á ysta lagi húðarinnar hjálpar formúlan til við að auðvelda vatnsflæði á milli frumna* og endurheimtir varnarlag húðarinnar, í leðurhúðinni veitir formúlan aukna rakagjöf og innan hornlagsins heldur formúlan í raka. Hydra-Global hjálpar húðinni að endurheimta sitt besta rakastig og veitir unglegra útlit.
Stíflar ekki húðina.
*Prófað á rannsóknarstofu.
Ávinningur innihaldsefna
Padína-þari örvar myndun glýkósamínóglýkana.
Sólblóm nærir, mýkir og endurlífgar.
Salvía (ilmkjarnaolía) örvar.
Kastanía kemur reglu á flögnun húðfrumna á yfirborðinu og endurheimtir varnarlag húðarinnar.
Lavender (ilmkjarnaolía) róar og kemur á jafnvægi. Malakít styrkir varnir húðarinnar gegn sindurefnum. Þrenningarfjóla eykur vatnsflæði á yfirborði húðarinnar á milli húðfrumna. Sykurlaufkjarni veitir raka. Majóran (ilmkjarnaolía) róar.
Notkunarleiðbeiningar
Berðu Hydra-Global kvölds og/eða morgna á hreina og þurra húð, á andlit og háls, með léttum nuddhreyfingum.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.