Vörulýsing
Reviber Deep Tissue Percussion Massage Gun er fullkomið í endurheimt vöðva, losun á spennu og djúpvefjanudd.
framlengingin á handfangið gerir þér auðvelt að ná niður á bak, fótleggi og herðar. Með fimm hraðastillingum og fimm skiptanlegum hausum sníður þú nuddið að þínum þörfum, hvort sem þú vilt létta á spennu og flýta endurheimt eða vinna kröftuglega á vöðvunum eftir æfingu.
Tækið er hannað fyrir hljóðláta notkun og þægindi. Öflug 2400 mAh rafhlaða dugir í allt að 2 klukkustundir á einni hleðslu og USB-C tengi.
Hvort sem þú ert að vinda ofan af þér eftir æfingu eða losa um spennu er þetta fjölhæfa nuddtæki kærkomin viðbót.
Kostir:
– Losar um stífa vöðva og djúpa spennu.
– Tilvalið í endurheimt eftir íþróttir eða til daglegrar notkunar.
– Auðvelt að ná til svæða sem erfitt er að komast að.
– Sérsniðið nudd með 5 hraðastigum.
– Öflug rafhlaða fyrir langa og jafna notkun.
– Hljóðlátur mótor sem hentar fullkomlega heima eða á skrifstofunni.
Eiginleikar:
– 5 stillanlegar hraðastillingar.
– 5 ólíkir nuddhausar.
– Hljóðlátt í notkun (30–50 dB).
– Langt framlengingarhandfang.
– USB-endurhlaðanlegt – 2400 mAh rafhlaða.
– Létt hönnun með mikla afkastagetu.
– Hleðslutími rafhlöðu: 4 klukkustundir.
– Ending rafhlöðu: 2 klukkustundir.
– 2 ára ábyrgð á vörunni.
Innihald:
– Reviber Percussion Massage Gun.
– Langt framlengingarhandfang.
– 5 nuddhausar (einn punktur, fjórir fingur, fleygur, kúla, flatur).
– USB-C hleðslusnúra.
– Notendahandbók.
Leiðarvísir um nuddhausa
Oddhaus (Figure Point)
Nær nákvæmlega í hnúta og spennt svæði. Tilvalinn fyrir nudd á nálastungupunkta og þrýstipunkta.
Best fyrir: Nákvæma losun á afmörkuðum, stífum blettum.
Kúpthaus (Domed)
Mjúkur og mildur og hannaður fyrir álagslítið nudd. Fullkominn á viðkvæm svæði og gefur allra mildasta styrkinn.
Best fyrir: Handleggi, herðar, háls og kvið.
Fjölpunktahaus (Multi-Point)
Með ávölum þrýstipunktum sem veita djúpa og jafna örvun yfir stóra vöðvahópa. Hjálpar til við að losa spennu, auka blóðflæði og styðja við endurheimt eftir áreynslu.
Best fyrir: Bak, læri, rassvöðva og aðra stóra vöðva.
Kúluhaus (Round)
Fjölhæfur haus fyrir daglega notkun. Gott jafnvægi milli þæginda og þrýstings og hentar bæði byrjendum og vönum notendum.
Best fyrir: Framanverð læri, aftanverð læri, kálfa, rassvöðva, upphandleggi og herðar. Frábær í heilsnudd.
Flathaus (Flat)
Gefur stöðugan og jafnan þrýsting yfir meðalstór og stór vöðvasvæði. Frábær í endurheimt og á vöðva sem þurfa vandað og jafnt nudd. Má einnig nota á nálastungupunkta og þrýstipunkta.
Best fyrir: Framanverð læri, aftanverð læri, rassvöðva, brjóstkassa, bak og kálfa.
Myndband:

































Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.