Vörulýsing
Reviber Zen Physio Back Therapy Belt er snjallari leið til að létta á mjóbakinu, byggja það upp og slaka á.
Þetta netta, þráðlausa tæki sameinar þrjár öflugar meðferðir í einu belti sem þú getur borið á þér. Með fjórum hitastigum og fjórum titringsstillingum: stöðugum, púlsandi, skiptum og breytilegum takti, er einfalt að sníða upplifunina að þér og fá sem mest út úr henni.
Beltið notar háþróaða LED-tækni með tveimur bylgjulengdum – 660 nm rautt ljós sem verkar nálægt yfirborði og 850 nm innrautt ljós sem nær dýpra – örvar frumustarfsemi og eykur staðbundið blóðflæði um leið og það mildar vöðvaspennu og eymsli.
Snjöll NTC-hitastýring hitar beltið upp í valið hitastig á aðeins 10 sekúndum og heldur því jöfnu og öruggu alla notkunina.
Beltið er líkamsvænt í sniði, úr mjúku og góði efni sem andar vel og fer vel við húð, og með stillanlegum teygjuólum. Þetta er dagleg bakumhirða að hætti Reviber. Hvort sem þú ert í vinnunni, í endurheimt eftir áreynslu eða einfaldlega að vinna á daglegri spennu er Zen Physio Back Therapy Belt þægileg leið til að létta á og fá stuðning.
Kostir:
– Dregur úr spennu og óþægindum í mjóbaki.
– Eykur staðbundið blóðflæði og vöðvaslökun.
– Styður við endurheimt og daglega umhirðu líkamsstöðu.
– Traust ljósmeðferð með tveimur bylgjulengdum.
– Meðfærilegt, þráðlaust og einfalt í notkun.
– Líkamsvænt snið – má bera undir eða utan yfir fötum.
Eiginleikar:
– Þrjár meðferðir í einu: rautt og innrautt ljós, hiti og titringur.
– Tvær LED-bylgjulengdir: 660 nm rautt + 850 nm innrautt.
– 50 LED-ljós með 4 geislunarstyrkjum, allt að 27,3 mW/cm².
– Fjórar hitastillingar: 40 °C til 55 °C með snjallri NTC-stýringu.
– Fjórar titringsnuddstillingar (tveir mótorar, 5000 sn./mín.).
– Sjálfvirk slokknun til öryggis (15 mínútur).
– Allt að 9 klukkustunda ending (í titringsstillingu).
– Ólin passar á 61–145 cm mittismál.
Innihald:
– Reviber Zen Physio Back Therapy Belt
– Framlengingaról
– USB-hleðslusnúra (80 cm)
– Notendahandbók
Myndband:









































Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.