Vörulýsing
Lúxus ferðasettið frá MARC INBANE inniheldur náttúrulegt brúnkusprey í ferðastærð og kabuki bursta sem hjálpar við að ná fallegri og jafnri brúnku. Kabuki burstinn hentar einstaklega vel til að ná að bera jafnt á fingur og hendur og eins á andlitið.
Lúxus ferðasettið inniheldur:
1 x MARC INBANE náttúrulegt brúnkusprey 50 ml
1 x MARC INBANE kabuki bursti
1 x MARC INBANE lúxus ferða snyrtitaska
Náttúrulegt brúnkusprey:
MARC INBANE náttúrulega brúnkuspreyið er létt sprey sem lagar sig að þínum húðlit og gefur fallega og jafna brúnku. Spreyið hressir upp á húðlitinn og gerir hann samstundis geislandi. Það þornar hratt, skilar flekkjalausri áferð og auðvelt er að bera það á með örtrefjahanskanum. Spreyið inniheldur náttúruleg innihaldsefni úr jurtaríkinu svo sem aloe vera og ginko. Förðunarfræðingar, snyrtifræðingar og hárgreiðslufólk mælir reglulega með MARC INBANE brúnkuspreyinu.
Auðveld, heilbrigð og örugg leið til að fá og viðhalda fallegri brúnku allt árið um kring.
Kabuki Brush:
Kabuki burstinn frá MARC INBANE er förðunarbursti sem er hannaður af förðunarfræðingum sem eru leiðandi á sínu sviði. Burstinn er rúnnaður og með flötum toppi. Notaðu burstann til að blanda brúnkuspreyinu á svæði sem gleymdust eða til að forðast skil, en með honum færðu þétta og fallega áferð.
Kabuki er einnig tilvalinn sem farðabursti, hvort sem er fyrir púður eða kremaðan fara.
Hárin á burstanum hafa verið meðhöndluð þannig að þau eru ekki ofnæmisvaldandi, án allra eiturefna og hafa fengið sérstaka bakteríudrepandi meðferð. Burstinn hentar öllum húðgerðum, jafnvel þeim allra viðkvæmustu. Þessi hágæða bursti er skyldueign fyrir alla sem er umhugað um förðun og fegurð.
Notkunarleiðbeiningar
1. Spreyjaðu brúnkuspreyinu beint á burstann
2. Dúmpaðu umfram spreyi á tusku eða bréf
3. Nuddaðu burstanum með hringlaga hreyfingum fyrir jafna áferð.
Um merkið
MARC INBANE er hágæða hollenskt snyrtivörumerki sem framleiðir lúxus húðvörur með áherslu á brúnkuvörur og eru þau frumkvöðlar á sínu sviði.
Hrein innihaldsefni, faglegt handverk, fáguð útlitshönnun og fagmennska í öllu framleiðsluferlinu setur MARC INBANE í leiðandi stöðu í framleiðslu á hágæða snyrtivörum.
Stöðugur vilji okkar hjá MARC INBANE til að betrumbæta og þróa afurðir okkar gerir okkur kleift að vera í fremstu línu við að kynna nýjustu framfarir í heimi brúnkunnar. Vegna þessa hafa vörur okkar unnið til verðlauna um allan heim.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.