Vörulýsing
Naglabandapinnarnir frá Jean Louis David eru einfalt og ómissandi verkfæri fyrir snyrtilegar neglur, hvort sem þú gerir handsnyrtingu heima eða undirbýrð neglurnar fyrir naglalakk.
Pinnarnir eru úr viði og með tvo mismunandi enda. Skáskorni, flati endinn hentar vel til að ýta naglaböndum mjúklega til baka. Oddhvassi endinn nær vel undir og í kringum nöglina og hentar til að hreinsa og laga smáatriði. Í pakkanum eru líka pinnar með grófum, slípandi enda sem fjarlægja þurra húð og fínpússa svæðið við naglaböndin.
Viðurinn er mildur við neglur og húð. Pinnarnir eru léttir og meðfærilegir og passa auðveldlega í snyrtitöskuna.
– 8 naglabandapinnar í pakka
– Blanda af hefðbundnum pinnum og pinnum með slípandi enda
– Tveir mismunandi endar á hverjum pinna
– Henta fyrir handsnyrtingu og fótsnyrtingu
Notkunarleiðbeiningar
1. Mýktu naglaböndin fyrst, t.d. með því að leggja fingurna í volgt vatn í nokkrar mínútur eða bera á þau naglabandaolíu eða -krem.
2. Notaðu flata, skáskorna endann til að ýta naglaböndunum varlega aftur að naglarótinni.
3. Notaðu oddhvassa endann til að hreinsa varlega undir og meðfram nöglinni.
4. Notaðu slípandi endann til að fjarlægja þurra húð og jafna svæðið í kringum naglaböndin.
5. Berðu að lokum á naglabandaolíu eða handáburð til að næra húðina.




Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.