Vörulýsing
Kóreska leyndarmálið að óaðfinnanlegri húð liggur í háþróuðum, margvirkum formúlum sem lagfæra útlit húðarinnar og gefa ljóma og mýkt. GLOW CRÈME dregur úr litlum útlitsgöllum húðar og gefur ljóma og ferskt litarhaft í einu einföldu skrefi. Þetta margvirka krem hefur ljómandi áhrif svo að húðin lítur út fyrir að vera fersk, full af raka og óaðfinnanleg. GLOW CRÈME gefur húðinni samstundis fallega perluáferð og útgeislun sem virðist grípa og endurspegla birtu á töfrandi hátt.
GLOW CRÈME inniheldur lakkrísrótarseyði sem hefur ljómandi og fegrandi áhrif á húðina, gefur henni raka og sléttir úr henni. Perlukennd húðin ljómar sem aldrei fyrr.
Prófað undir eftirliti húðlækna. Stíflar ekki húðholur.
Virk innihaldsefni:
– Kínverskt poria cocos rótarseyði (e. Poria cocos extract): Andoxunarvirkni, sefandi
– Lakkrísrótarseyði (e. Licorice Root Extract): Andoxunarvirkni, sefandi og gefur húðinni ljóma.
– Jurta skvalín (e. Vegetal squalane): Verndar húðina og kemur í veg fyrir rakaskort.
– E-vítamín: Andoxunarvirkni
– Niacinamide: Gefur húðinni bjart útlit og viðheldur rakastigi húðar
Hverjum hentar varan?
Hentar öllum húðtegundum.
Notkunarleiðbeiningar
Berðu þunnt lag á húðina eins og venjulega dagkremið þitt. Kremið virkar líka sem frábær farðagrunnur.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.