Vörulýsing
Ljómaaukandi dagkrem sem er viðbót við Super Restorative-línuna, en hún er hönnuð fyrir húð sem glímir við aldurstengdar hormónabreytingar. Rannsóknarstofur Clarins hafa sameinað öflugustu ljómaaukandi innihaldsefnin saman við einstaka plöntukjarna til að endurnæra, endurnýja og fegra húðina. Dag eftir dag endurheimtir húðin náttúrulegan og rósalitaðan ljóma sinn. Clarins sameinar þrjú sérvalin innihaldsefni fyrir ljómaaukandi áhrif til að færa húðinni þrjár víddir af útgeislun: ljómandi húð, jafn húðtónn og slétt áferð. Blanda sjö plöntukjarna endurlífga ungleika og ljóma húðarinnar. Einstök áferð sem gengur auðveldlega inn í húðina og gerir hana samstundis ljómameiri.
87% Ljómameiri húð.* 83% Rósalitaður ljómi endurheimtur.** 82% Heilbrigður ljómi.*** 81% Tónaðri húð.* 81% Betrumbætt húðáferð.* 80% Jafnari húðtónn.* 80% Sléttari húð.* 86% sögðu þetta ljóma í krukku.*** *Ánægjupróf – 105 konur – eftir 28 daga **Ánægjupróf – 105 konur – eftir 7 daga. ***Ánægjupróf – 105 konur – við ásetningu.
Allar húðgerðir
Stærð: 50 ml
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.