Vörulýsing
Ríkulegt og nærandi andlitskrem þróað til að veita húðinni raka, dregur úr sýnileika fínna lína og eykur þéttleika. Formúla BL+ The Cream inniheldur einstaka samsetningu lífvirkra efna sem næra, auka raka, örva kollagenframleiðslu í húð, draga úr niðurbroti kollagens, slétta áferð og endurheimta þéttleika húðarinnar ásamt því að styrkja varnarlag hennar. Virkni knúin áfram af okkar einstaka BL+COMPLEX
Húðin verður þéttari, sléttari og rakafyllri. Sýnileiki fínna lína og hrukkna minnkar samhliða aukinni mýkt og náttúrulegum ljóma.
Ríkuleg og silkimjúk áferð
Prófað af húðlæknum
Án ilmefna
Rekjanleg innihaldsefni valin af ábyrgð
Hentar grænkerum
Hentar venjulegri og þurri húð
Lykilefni:
BL+ COMPLEX örvar nýmyndun kollagens, dregur úr niðurbroti kollagens og styrkir varnarlag húðarinnar. Við hönnun á BL+ COMPLEX er notuð náttúruleg fosfólípíðferja til þess að koma einstakri blöndu af einkaleyfisvörðum örþörungum og kísil Bláa Lónsins djúpt niður í húðlögin til að hámarka virkni. Einstakt innihaldsefni á heimsvísu sem finnst einungis í BL+ húðvörulínunni.
JARÐSJÓR BLÁA LÓNSINS endurnærir húðina með nauðsynlegum steinefnasöltum og eykur þannig heildarvirkni formúlunnar.
NÍASÍNAMÍÐ, vatnsleysanlegt B3-vítamín, hefur margvíslegan ávinning. Fyrirbyggir skemmdir af völdum útfjólublárra geisla, styrkir varnarlag húðarinnar auk þess að bæta húðtón og áferð.
SERAMÍÐ veita raka og bæta lípíðforða en þau fyrirfinnast náttúrulega í húðinni. Þau gegna mikilvægu hlutverki í varnarlagi húðarinnar og gera hana mýkri og sléttari.
SKVALÍN hjálpar til við að innsigla raka í húðinni, nærir og endurheimtir mýkt.
Notkunarleiðbeiningar
Notið kvölds og morgna, eftir hreinsun, á andlit og háls.
Berið með léttum strokum upp á við.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.