Vörulýsing
BeautyLash Full Brow Tinting Pen Two Go: Byltingarkenndir, vegan litapennar fyrir augabrúnir
Það hefur aldrei verið auðveldara að lita augabrúnirnar!
Með nýju BeautyLash litapennunum frá Refectocil er engin þörf á blöndun, þar sem liturinn er borinn á, í tveimur einföldum skrefum með pennunum.
Prófað af húðlæknum og augnlæknum. Notkunin er einföld og tekur aðeins nokkrar mínútur og útkoman endist í nokkrar vikur.
Pennarnir duga í allt að 20 skipti og eru aðeins ætlaðir til litunar á augabrúnum.
Notkunarleiðbeiningar
Fyrst skal hreinsa augabrúnirnar vel og tryggja að þær séu þurrar.
Skref 1: Berðu Gel 1 (hvíti penninn) á augabrúnirnar og láttu liggja í 2 mínútur. Eftir á skal fjarlægja umfram gel með þurrum eyrnapinna eða þurri bómullarskífu.
Skref 2: Berðu Gel 2 (blái penninn) á augabrúnirnar og láttu liggja í 1 mínútu. Að lokum skal fjarlægja Gel 2 með rakri bómullarskífu.
• Natural Brown gefur augabrúnunum náttúrulegan brúnan tón.
• Black Brown gefur augabrúnunum djúpan svart/brúnan lit.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.