Okkur finnst alltaf gaman að lesa um snyrtivörur svo við tókum saman nokkrar skemmtilegar staðreyndir.
- Estee Lauder er sögð hafa misst ilmvatnið sitt „óvart“ í miðri stórverslun verslun á háannatíma. Konunum í búðinni líkaði ilmurinn svo vel að þær komu upp að henni og spurðu hana um ilminn. Þannig náði hún sér í fyrstu kúnnana.
- Sala á varalitum eykst þegar það er kreppa – og líka á rigningardögum. „The lipstick effect“ er kenning sem segir að þegar að neytendur kaupa minna af dýrari lúxusvörur eins og t.d. skartgripum þá kaupa þeir frekar ódýrari lúxusvörur svo sem varaliti.
- Naglalakkið er sagt eiga upprunna sinn í Kína og hafa fundist minjar af naglalakki síðan 3.000 árum fyrir Krist. Naglalakkið var búið til úr býflugnavaxi, eggjahvítum, acacia gum og lituðu púðri.
- Hvala gubb (já þú last rétt) eða öðru nafni Ambergris hefur lengi verið notað sem innihaldsefni í dýrum ilmvötnum því að það lætur lyktina endast lengur. Grammið af því getur kostað allt að 200 USD.
- Coco Chanel er ástæðan fyrir því að tan komst í tísku, en hún setti það trend óvart í gang þegar að hún fór í sumarfrí um 1920 til Frakklands kom til baka brún. Eftir það byrjuðu snyrtivöru merki að keppast við að framleiða gervibrúnku.
- Fyrsta vara snyrtivörumerkisins Benefit, Benetint sem er vara-og kinnalitur var upphaflega fundinn upp til þess lita geirvörtur á nektar dansmeyjum.
- Hefurðu einhverntíman velt fyrir þér hversu lengi snyrtivaran þín endist? Á flest öllum snyrtivörum er lítil dolla með númeri á. Númerið táknar hversu marga mánuði þú mátt nota vöruna eftir að hún er opnuð.
Íris Björk Reynisdóttir