Vörulýsing
Double Serum Eye er öflug augnmeðferð gegn öldrunareinkennum. Ný og endurbætt formúla sameinar kraft virku innihaldsefnanna úr hinu vinsæla Double Serum og vinnur gegn bæði lífstílstengdri og náttúrulegri öldrun húðarinnar.
Formúlan inniheldur marjoram-þykkni og túrmerikþykkni sem hjálpa til við að draga úr sýnilegum öldrunareinkennum. Níasínamíð vinnur gegn dökkum baugum og eykur ljóma augnsvæðisins, á meðan hestakastaníuþykkni og plöntukoffín hjálpa til við að draga úr þrota og fríska upp á augnsvæðið.
Létt og silkimjúk áferðin veitir þægilega tilfinningu og hentar einstaklega vel fyrir viðkvæmt augnsvæðið. Nýi skammtarinn er hannaður með sjálfbærni að leiðarljósi og gerir þér kleift að velja nákvæmlega það magn sem hentar hverju sinni.






















Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.