Vörulýsing
Skincaring Shower Essentials Set er gjafasett sem allir geta notað. Dekraðu við líkamann þinn og byrjaðu daginn á nuddi með náttúrulega, milda en samt virka skrúbbinum.
Nuddaðu honum vel saman við húðina með aðstoð Body Brush. Á sama tíma vaknarðu betur með dásamlegum ilm af eucalyptus og rósmarín. Húðin verður þá tilbúin til að taka á móti góðum raka frá líkamskremum sem skilar sér í betri virkni þar sem dauðar húðfrumur hafa verið fjarlægðar af yfirborði húðarinnar. Húðin verður frísklegri og fær meiri ljóma.
Gjafasettið inniheldur Everyday Polisher Scrub og Body Brush. Vörurnar stuðla að jafnara PH gildi húðarinnar, vörurnar eru 100% vegan og skrúbburinn er með 97% náttúruleg innihaldsefni.
Notkunarleiðbeiningar
Everyday Polisher á að nudda á blauta húð um allan líkamann þar til mjúk froða kemur í ljós. Notið Body Brush með til að hámarka áhrifin og nuddið honum yfir líkamann með hringlaga hreyfingum. Skolið vel og þerrið húðina.
Til að hámarka áhrifin er gott að bera Instant Booster og Skin Drencher eða Night Glove á þurra húðina eftir skrúbbinn.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.