Vörulýsing
CREAMY SOAP tilheyrir Þrepi 2 í tvöfaldri hreinsun SENSAI og er hönnuð til að fjarlægja vatnsuppleysanleg óhreinindi svo sem svita og dauðar húðfrumur, eftir að Þrep 1 hefur leyst upp farða og húðfitu.
Endurnýjuð formúlan myndar þétta og einstaklega mjúka froðu þegar hún er þeytt upp með vatni. Froðan umlykur húðina og hreinsar hana á mildan hátt, þannig að yfirbragðið verður tært, fíngerðara og silkimjúkt.
CREAMY SOAP inniheldur hið dýrmæta Koishimaru Silk sem viðheldur raka húðarinnar og stuðlar að mjúkri áferð. Ginseng sem róar húðina og Kanzo kjarna sem unnin er úr austurlenskri lækningajurt, vinnur gegn pirringi og hjálpar til við að viðhalda rólegu og heilbrigðu yfirbragði. Hentar vel fyrir venjulega og blandaða húð.
Notkunarleiðbeiningar
Freyðið lítið magn vel upp með vatni þar til myndast þétt og mjúk froða. Dreifið froðunni varlega yfir raka húð og nuddið mjúklega með hringlaga hreyfingum. Skolið vandlega af með volgu vatni. Til að fullkomna hreinsunarupplifunina mælum við með SPONGE CHIEF® þvottaklútnum frá SENSAI. Klúturinn dregur í sig óhreinindi á einstaklega mildan hátt og skilur húðina eftir hreina og mjúka án þess að erta hana. Notist að kvöldi eftir Þrepi 1 í tvöfaldri hreinsun og eina og sér að morgni.






