Vörulýsing
Cleansing Milk er silkimjúk hreinsimjólk sem fjarlægir farða og önnur olíuleysanleg óhreinidi á mildan en áhrifaríkan hátt. Varan inniheldur Koishimaru Silk Royal™ sem verndar ysta lag húðarinnr. Útkoman verður mjúk, þétt og ljómandi húð. Micro Mousse Wash er þétt hreinsifroða sem inniheldur örfínar loftbólur sem eru umvafðar verndandi og rakagefandi innihaldsefnum. Virkar einstaklega vel til að fjarlægja vatnsleysanleg óhreinindi svo sem bakteríur, svita og dauðar húðfrumur. Óhreinindi losna úr svitaholum og húðin verður frískleg, ljómandi og silkimjúk. Micro Essence-In-Lotion er uppbyggjandi rakavatn þar sem nærandi eiginleikar 7,9 trilljón olíuagna og Koishimaru silki koma saman í hverjum dropa. Það er hannað til að takast samtímis á við fimm helstu vandamál húðarinnar hvað varðar öldrun, veitir raka og ljóma ásamt því að stinna húðina og fyrirbyggja hrukkur. Rakavatnið veitir húðinni næringu og undirbýr hana fyrir komandi meðferð. Hentar fyrir venjulega til þurra húð. Total Form Expert Cream er einstaklega uppbyggjandi rakakrem sem sérhæfir sig í að styrkja og bæta útlínur andlits. Dregur úr fínum línum og veitir stinnari og silkimjúka húð. Ríkuleg áferðin veitir húðinni og skynfærum vellíðan. Þegar þetta mótandi krem er borið á húðina með sérstakri nuddtækni veitir það þéttari, stinnari húð með aukinni lyftingu. Með krafti Koishimaru Silk EX og nýrri, sérhannaðri Total Form CPX-formúlu nýtir það hálfrar aldar þekkingu SENSAI á öldrunarvörn húðarinnar. Fyrir allar húðgerðir.
Notkunarleiðbeiningar
Cleansing Milk: Setjið hæfilegt magn í bómullarskífu eða í lófann og dreifið varlega um allt andlitið. Þegar búið er að nudda vel og leysa upp farða og önnur óhreinindi skal strjúka vöruna varlega af með bómullarskífum/klút eða skola vandlega af með vatni.
Micro Mousse Wash: Án þess að hrista flöskuna eða snúa henni á hvolf skal setja hæfilegt magn í lófann og nudda varlega yfir allt andlitið. Forðist að bera á augnsvæði. Strjúkið varlega af með klút eða skolið vandlega af með vatni. Notið á kvöldin eftir að búið er að fjarlægja farða og á morgnana.
Absolute Silk Micro Essence-In-Lotion: Berið ríkulega á hreina húð kvölds og morgna, undir rakakrem.
Total Form Expert Cream: Notist kvölds og/eða morgna á eftir rakavatni.



