Vöruyfirlit – Útskýring:
Þessi Microcurrent Skincare™-tvenna inniheldur NuFACE FIX Line Smoothing Device og FIX Serum. Báðar vörurnar eru í hentugri stærð sem passar í snyrtiveskið en eru þó nægilega kraftmiklar til að slétta samstundis úr línum á andlitinu. Saman dregur þessi tvenna úr ásýnd fínna lína og hrukkna í kringum augu, varir og enni á einungis 3 mínútum, á hverju meðferðarsvæði fyrir sig.
NuFACE FIX™ er á stærð við maskara sem samstundis sléttir ásýnd fínna lína og hrukkna í kringum augu, munn og enni. Þú getur einnig notað FIX í kringum útlínur varanna til að gera þær mótaðri og þrýstnari.
Hvernig virkar það?
NuFACE FIX™ er tæki sem sléttir ásýnd lína á andlitinu með því að gefa frá sér örstraum. Þannig verða fínar línur og hrukkur á andlitinu samstundis sléttari og húðin þéttari ásýndar. Hið ávanabindandi NuFACE FIX Serum er hlaðið virkum innihaldsefnum sem hjálpa til við að auka rakastig húðarinnar, þétta hana og gera yfirbragð hennar bjartara. NuFACE FIX Serum er orkugefandi formúla sem undirbýr húðina áður en tækinu er rennt yfir hana. Notaðu FIX Serum bæði fyrir notkun NuFACE FIX™-tækisins eða þegar þér finnst þú þurfa að hressa húðina við – eða jafnvel yfir farða.
Notaðu tækið með fjaðrandi tækni, snöggum hverfandi hreyfingum, sem sléttir fínar línur og hrukkur í kringum augu, munn, enni og nef á einungis 3 mínútum á hverju meðferðarsvæði.
NuFACE FIX™:
-Samstundis árangur
-Fljótleg lausn
-Auðvelt í notkun og auðflytjanlegt
-Öruggt fyrir daglega notkun
-Virkni sönnuð á klínískan máta
-Samþykkt af Matvæla- og lyfjaeftirlitsstofnun Bandaríkjanna (FDA)
Notkunarleiðbeiningar
Vertu með hreina og þurra húð. Berðu FIX Serum á meðferðarsvæðið, í svipuðu magni og andlitsmaska.
Notaðu fjaðrandi FIX-tæknina, sem er snögg hverfandi hreyfing, til að draga úr ásýnd fínna lína og hrukkna í kringum augu, munn, enni og nef.
Ýttu varfærnislega því sem eftir er af FIX Serum inn í húðina til að framkalla langvarandi stinnandi og rakagefandi áhrif. Notaðu FIX-tækið í 3 mínútur á hverju meðferðarsvæði fyrir sig, allt að tvisvar sinnum á dag.
Hvað er innifalið?
NuFACE FIX
NuFACE FIX Serum (7,4 ml.)
Leiðarvísir
Micro USB-snúra
NuFACE FIX Serum
Kraftur örstraums í formi serums. FIX Serum er fyrsta Microcurrent Skincare™-serumið með virkum innihaldsefnum sem hjálpa til við að slétta og þétta húðina auk þess að veita henni bjartara yfirbragð. Einungis perlustærð af þessu orkugefandi serumi færir húðinni nauðsynlegan raka og vekur upp þreytt augu, endurlífgar dauft yfirbragð húðarinnar og endurheimtir ljóma hennar – jafnvel án farða! Hið orkugefandi NuFACE FIX Serum undirbýr húðina áður en NuFACE FIX-tækinu er rennt yfir hana. Notaðu FIX Serum til að undirbúa húðina fyrir notkun FIX-tækisins eða þegar þú vilt hressa húð þína við – þú getur einnig borið það yfir farða.
Helstu innihaldsefni
PŪRE ENERGY™-BLANDA
Einkaleyfisvarin samsetning með gimsteini auðguðum magnesíum, snjósveppa-þykkni ásamt hýalurónsýru til að endurhlaða húðina með örstraumsorku samhliða rakagjöf.
SMART PEPTIDE SYSTEM
Hámarkar virknina með því að einblína á og vinna gegn ásýnd tjáningarlína og hjálpar við að slétta áferð húðarinnar.
JÓNUÐ FORMÚLA
Skilar húðbætandi ávinningi á hverju stigi og vinnur með náttúrulegri hleðslu húðar þinnar. Þannig endurheimtir húðin stinnleika sinn og mýkt.
Inniheldur ekki: Paraben, súlföt, alkóhól, olíur, ilmefni, gervi-litarefni né glúten.
Raunverulegar niðurstöður
100% kvenna sögðu húð sína samstundis rakameiri*
97% kvenna sögðu húð sína samstundis þéttari í kringum augun*
95% kvenna sögðu húðina í kringum augun virka minna þrútin*
92% kvenna sögðu meðferðarsvæðið samstundis þéttara við snertingu*
Hverjir ættu ekki að nota NuFACE FIX?
Ekki skal nota NuFACE FIX ef þú ert ófrísk, með gangráð, ígrædd rafræn tæki, ert með flogaveiki eða með virkt krabbamein. Hafir þú læknisfræðilegar áhyggjur skaltu ráðfæra þig við lækni áður en þú notar tækið.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.