Hressilegur litur sem að kemur með gott mótvægi við dökk föt hausts, og vetrar. Glaðlegur, bleik-rauður litur með fínlegum, sætum jarðarberjailmi hressir upp á útlit þitt bæði hversdags og einnig þegar verið er að gera vel við sig.
Með stolti kynnum við naglalakk sem ilmar jafn yndislega og það er fallegt. Nýtt spennandi úrval af litum sem hafa örlítin keim af ljúfum ilmi. Þegar þessi glæsilegu lökk þorna þá myndast yndislegur ilmur sem við öll þekkjum og elskum. Þessi einstaka samsetning ilms og glæsilegra lita örvar öll skynfæri, nagladekrið verður einstök upplifun. Skapandi, aðlaðandi og skemmtilegt, þessi nýja lína sem kemur í takmörkuðu magni mun ýta undir ímyndaraflið og skapa hátíðlega stemmingu á þessum yndislega árstíma sem er að renna upp. Fullkomnir til að gefa eða eiga, þessir nýju litir eru einstaki og þeir skemmtilegustu sem boðið verðu upp á fyrir nagladekur þessarar árstíðar.
Nailberry naglalökkin eru eiturefnalaus, vegan, næra, anda og hleypa í gegn raka og súrefni. Þau hafa hlotið hina kærkomnu vottun PETA “cruelty free”. L’Oxygéné línan frá Nailberry, eru sannkölluð lúxus naglalökk. Þau hleypa í gegn raka og súrefni. Eru eiturefnalaus, VEGAN, næra, anda, endast og eru framúrskarandi smart. Fagfólkið keppist um á dásama Nailberry L’Oxygéné. Þau hafa hlotið hina kærkomnu vottun PETA “cruelty free”.
L’Oxygéné eru án 12 skaðlegustu efnanna sem almennt er að finna í naglalökkum.
Þau eru:
- formaldehýð
- túlín
- kemísk kamfóra
- DPB (skaðleg þalöt)
- formaldehýð kvoðu (resin)
- xylene
- ethyl tosylamide
- triphenyl phosphate
- alkóhóls
- parabena
- dýraafurða
- glútens (sem er ekki sjálfgefið)
Nailberry L’Oxyéne henta því ekki bara flestum heldur öllum. Þar með talið óléttum konum, börnum og líka þorra þeirra sem þjást af allskyns ofnæmum. Þau sameina í senn fegurð og hreinleika og það ekkert gefið eftir þegar kemur að heilsusamlegum snyrtivörum. Neglurnar koma vel nærðar undan Nailberry L’Oxygén.
Notkunarleiðbeiningar
Einföld ráð til að láta naglalakkið endast:
1. Þvo á sér hendurnar, setja spritt eða naglalakkahreinsir í bómull og strjúka af nöglinni til þess að hreinsa í burt alla fitu og óhreinindi.
2. Lagfæra lengdina á nöglunum ásamt ójöfnum, setja þunna umferð af undirlakki eða næringu sem fyrstu umferð.
3. 2 þunnar umferðir af Nailberry naglalakki.
4. Setja yfirlakk sem gæti verið Fast dry gloss eða Shine & Breathe.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.