Galactic – Djúpur og rjómakenndur grár litur með ofurfínu glitri kallar fram heillandi áferð sem minnir á stjörnubjartan næturhimininn. Áberandi glitrandi með háglansandi áferð, mjúkur, fágaður upplífgandi litur. Þennan flotta hlutlausa lit er hægt að nota á daginn við dagleg störf og einnig til að undirstrika glæsilegt útlit þegar farið er út á kvöldin.
Viltu skjótast upp á stjörnuhimininn með haust – vetrar línunni sem við köllum „Himnesku línuna“ (Celestial Collection). Himneskt úrval af djúpum og draumkenndum litum og stórkostlegu glitrandi yfirlakki sem mun setja mark sitt á árstíðina sem er framundan. Glæsilegir, eftirtektarverðir og algjörlega einstakir litir sem munu leysa úr læðingi leyndardóma og töfra dagsins, kvöldsins, stemmingarinnar og tilefnisins. Þessir nýju litir hressa upp á grámyglulegan hversdaginn með yfirnáttúrulegri, upplífgandi litadýrð sem er innblásin af sköpunarkrafti og gefur lífinu lit á þessum dimma árstíma.Eins og alltaf þá mun okkar frábæra naglalakk og breiði flati burstinn tryggja einstaka, jafna og fullkomna lökkun sem mun skila sér í gljáandi áferð og góðri endingu.
Nailberry L’Oxyéne henta því ekki bara flestum heldur öllum. Þar með talið óléttum konum, börnum og líka þorra þeirra sem þjást af allskyns ofnæmum. Þau sameina í senn fegurð og hreinleika og það ekkert gefið eftir þegar kemur að heilsusamlegum snyrtivörum. Neglurnar koma vel nærðar undan Nailberry L’Oxygén.
Notkunarleiðbeiningar
Einföld ráð til að láta naglalakkið endast
- Þvo á sér hendurnar, setja spritt eða naglalakkahreinsir í bómull og strjúka af nöglinni til þess að hreinsa í burt alla fitu og óhreinindi.
- Lagfæra lengdina á nöglunum ásamt ójöfnum, setja þunna umferð af undirlakki eða næringu sem fyrstu umferð
- 2 þunnar umferðir af Nailberry naglalakki
- Setja yfirlakk sem gæti verið Fast dry gloss eða Shine & Breathe.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.