Vörulýsing
MARC INBANE Black Exfoliator er rakagefandi djúphreinsir með kornum sem gefur húðinni heilbrigðan ljóma. Það sem gerir þennan djúphreinsi sérstakan eru svörtu kornin sem hafa bakteríudrepandi áhrif. Hann hjálpar til við að endurnýja ysta lag húðarinnar og inniheldur náttúruleg innihaldsefni. Með því að nota djúphreinsinn áður en þú berð á þig brúnku færðu jafnari lit sem endist lengur.
Endurnýjandi eiginleikar
Náttúrulegir eiginleikar MARC INBANE djúphreinsins endurnýja ysta húðlagið sem gerir húðina móttækilegri fyrir hverjum þeim húðvörum sem bornar eru á í kjölfarið. Með því að nota djúphreinsinn á undan hvers kyns sjálfbrúnkuvörum verður húðin sléttari sem gefur jafnari húðtón og liturinn endist lengur. Virkar einnig sem djúphreinsandi maski.
MARC INBANE framleiðir lúxus húðvörur og leggur ríka áherslu á að velja hágæða innihaldsefni. Djúphreinsirinn var það engin undantekning en hann inniheldur mikið magn steinefna, vítamína, amínósýra og andoxunarefna.
Allar vörur frá MARC INBANE eru án parabena.
Notkunarleiðbeiningar
1. Hreinsið húðina
2. Berið lítið magn af skrúbbinum á raka húð.
3. Nuddið léttlega með fingurgómunum með hringlaga hreyfingum og leggið ríka áherslu á T-svæðið en forðist augnsvæðið.
4. Hreinsið með vatni.
Notið einu sinni til þrisvar í viku eftir því hvernig húðgerðin er.
Einnig er hægt að láta skrúbbinn liggja á í 10 mínútur en þá virkar hann sem hreinsimaski.
Um merkið
MARC INBANE er hágæða hollenskt snyrtivörumerki sem framleiðir lúxus húðvörur með áherslu á brúnkuvörur og eru þau frumkvöðlar á sínu sviði.
Hrein innihaldsefni, faglegt handverk, fáguð útlitshönnun og fagmennska í öllu framleiðsluferlinu setur MARC INBANE í leiðandi stöðu í framleiðslu á hágæða snyrtivörum.
Stöðugur vilji okkar hjá MARC INBANE til að betrumbæta og þróa afurðir okkar gerir okkur kleift að vera í fremstu línu við að kynna nýjustu framfarir í heimi brúnkunnar. Vegna þessa hafa vörur okkar unnið til verðlauna um allan heim.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.