Vörulýsing
Næsta kynslóð af serumfarða sem sameinar farða og húðumhirðu á nýjan hátt. Þessi einstaka formúla tekur yngjandi ljóma upp á næsta stig og veitir húðinni satínkennda áferð. Þökk sé stillanlegu skífunni á flöskunni, þá er hægt að sérsníða miðlungs til fulla þekjuna að þínum þörfum.
Farðinn býr yfir kerfi sem nefnist [COLOUR + HYDRIC], innblásið af einstakri tvífasa tækni Double Serum, og býður þannig upp á tvíþætta nýsköpun í ljómagjöf.*
Í fyrri fasanum, [COLOUR], má finna nýja tækni sem nefnist A.U.R.A. (Advanced Ultra Radiance Amplifier) en hún byggir á ljómaaukandi innihaldsefnum og lýsandi örkristöllum sem hjálpa til við að veita samstundis ljómaáhrif.
Í seinni fasanum, [HYDRIC], vinnur papín ensím að því að leysa upp dauðar húðfrumur og veitir húðinni þannig endurnýjandi og ljómandi áhrif.
Þessi byltingarkenndi farði býr yfir 14 virkum innihaldsefnum og býður þannig upp á áður óséð húðumhirðuáhrif.* Fimm hreinar virkar sameindir og plöntuþykkni hjálpa til við að endurlífga fimm mikilvægar aðgerðir húðarinnar.
Umbúðirnar innihalda að minnsta kosti 40% endurunnið efni** og flaskan er úr 95% endurvinnanlegum efnum.
*Hjá Clarins.
**Efnafræðilega endurunnið efni byggt á jafnvægi massa.





















Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.