Vörulýsing
Olíulaust rakakrem með hýalúrónsýru fyrir venjulega og þurra húð. Rakakremið hentar bæði fyrir líkama og andlit og það hjálpar húðinni að styrkja og endurnýja ysta lag og varnir húðarinnar. CeraVe Moisturizing Lotion hjálpar húðinni að endurnýja nauðsynleg lípíð húðarinnar svo húðinni líði vel og hún sé í jafnvægi.
Formúlan inniheldur þrjú nauðsynleg seramíð sem styrkja ysta lag húðarinnar og rakagefandi hýalúrónsýru, hann er non-comedogenic og stíflar því ekki húðholur. Rakakremið er byggt á MVE tækni sem stuðlar að því að húðin fær jafna næringu allan daginn og alla nóttina. CeraVe Moisturizing Lotion var þróað með húðsjúkdómalæknum til að gefa húðinni raka og styrkja hana.
• Gefur raka og styrkir ysta lag og varnir húðarinnar.
• Létt og klístrast ekki.
• Hentar venjulegri/þurri húð
• MVE tækni: tæknileg aðferð sem stuðlar að því að húðin fær jafnt magn af næringarefnum í 24 tíma frá því varan er borin á húðina fyrst.
• Seramíð: Nauðsynlegir til að viðhalda heilbrigðri húð. Seramíð hjálpa til við að endurnæra og viðhalda styrk og heilbrigði ysta lags húðarinnar.
• Hýalúrónsýra: Innihaldsefni sem dregur til sín raka og viðheldur honum á yfirborði húðarinnar.
• Non-comedogenic, án ertandi innihaldsefna og ilmefnalaus
• Þróað af húðlæknum.
Notkunarleiðbeiningar
Berið kremið á þurra húð, nuddið kreminu saman við yfirborð húðarinnar með hringlaga hreyfingum. Kremið fer hratt inní húðina og skilur eftir sig þægilega rakamikla tilfinningu og MVE tæknin tryggir það að húðinni líði vel allan daginn.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.