Vörulýsing
Okkar eftirsóttustu vörur í glæsilegu gjafasetti. Þrjár kraftmiklar formúlur sem veita húðinni góðan raka ásamt sléttari og bjartari ásýnd.
Settið inniheldur: BL+ The Cream (50 ml), BL+ The Serum (5 ml) og Silica Mud Mask (30 ml) með taupoka.
SETTIÐ INNIHELDUR:
BL+ THE CREAM Einstaklega nærandi og rakagefandi krem sem eykur þéttleika húðar og dregur úr ásýnd fínna lína. Hentar öllum húðgerðum.
BL+ THE SERUM Öflug formúla sem gefur húðinni góðan raka og bjartara yfirbragð, ásamt því að draga úr litablettum og öðrum öldrunareinkennum húðar. Hentar öllum húðgerðum.
SILICA MUD MASK Hinn margrómaði hvíti andlitsmaski sem djúphreinsar og styrkir húðina. Gefur frísklegt yfirbragð og dregur úr sýnileika svitahola. Hentar öllum húðgerðum.
Notkunarleiðbeiningar
Notið BL+ The Serum og BL+ The Cream morgna og kvölds, eftir hreinsun, á andlit og háls.
Berið Silica Mud Mask ríkulega og jafnt yfir hreina húð. Forðist augnsvæðið. Látið bíða á húðinni í 5-10 mínútur. Skolið af með volgu vatni. Notið maskann eftir þörfum eða 2-3 sinnum í viku.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.