Vörulýsing
Mjúk hárnæring auðguð jarðsjó Bláa Lónsins sem nærir hárið og veitir því raka. Styrkjandi formúla sem losar um flækjur og mýkir hárið án þess að þyngja það.
Kremkennd formúla sem veitir hárinu samstundis mjúka áferð,fallegan gljáa og heilbrigða ásýnd.
Hentar öllum hárgerðum, áferðum og lengdum.
Kremkennd og létt áferð
Öruggt að nota fyrir litað hár
Rekjanleg innihaldsefni valin af ábyrgð
Lykilefni:
JARÐSJÓR BLÁA LÓNSINS er dýrmæt uppspretta nauðsynlegra steinefna sem efla og styrkja varnir húðarinnar. Uppleystu steinefnin gera húðina móttækilegri fyrir upptöku annarra virkra innihaldsefna svo heildarvirkni formúlunnar eykst.
Notkunarleiðbeiningar
Berið Conditioner í hárendana með léttu nuddi að hárþvotti loknum.
Látið vera í hárinu í 1-2 mínútur.
Hreinsið með volgu vatni. Forðist snertingu við augnsvæði.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.