Vörulýsing
Nærandi andlitsmaski sem kallar fram náttúrulegan ljóma húðarinnar og dregur úr sýnileika fínna lína og hrukkna. Formúlan er auðguð af lífvirkum örþörungum Bláa Lónsins sem djúpnæra húðina og örva kollagenframleiðslu hennar. Algae Mask veitir húðinni sléttara og ljómameira yfirbragð samhliða lyftingu.
Algae Mask kallar samstundis fram náttúrulegan ljóma. Húðin verður nærð og sýnileiki fínna lína og hrukkna minnkar.
Kremkennd áferð
Prófað af húðlæknum
Án ilmefna
Rekjanleg innihaldsefni valin af ábyrgð
Hentar öllum húðgerðum og grænkerum
Lykilefni:
ÖRÞÖRUNGAR BLÁA LÓNSINS hafa nærandi, andoxandi og endurnýjandi eiginleika. Einkaleyfisvarðir blágrænþörungarnir finnast í einstöku vistkerfi Bláa Lónsins en þeir örva, varðveita og vernda kollagenforða húðarinnar.
KÍSILL BLÁA LÓNSINS hefur djúphreinsandi, náttúrulega leireiginleika sem draga óhreinindi úr húðinni og bæta yfirbragð hennar. Kísillinn er lífvirkt innihaldsefni sem gefur Bláa Lóninu sinn einkennandi bláa lit og hefur verndandi og styrkjandi áhrif á náttúrulegt varnarlag húðarinnar.
Notkunarleiðbeiningar
Berið Algae Mask ríkulega jafnt á hreina húð. Forðist augnsvæðið.
Látið bíða í 5-10 mínútur.
Skolið af með volgu vatni.
Notist eftir þörfum eða 2-3 sinnum í viku.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.