Vörulýsing
Áhrifarík varameðferð knúin áfram af BL+COMPLEX™, þróuð til að vinna gegn fínum línum á
varasvæði ásamt því að mýkja, slétta og styðja við viðkvæma húð. BL+ Lip Renewal Mask
sameinar BL+ einkaleyfisvarin lífvirk innihaldsefni með bakúsíóli og seramíðum til að styðja við
kollagenmyndun, styrkja varnarlag varanna og draga úr þurrki. Ríkuleg formúlan nærir á meðan
hún mýkir sýnileika fínna lína og bætir áferð. Sérhannað áhald fylgir með til að tryggja auðvelda
notkun, örva blóðflæði til vara, bæta aðgengi formúlunnar og árangur meðferðar.
Ávinningur:Varir eru sjáanlega sléttari, mýkri og með bættri áferð. Sýnleiki fínna lína á varasvæði minnkar á
meðan rakastig eykst og varnarlag varanna styrkist.
• Ríkur og nærandi maski sem bráðnar inn í varirnar
• Mýkir ásýnd fínna lína í kringum varirnar
• Sérhannað áhald fylgir með til að auðvelda notkun, örva blóðflæði til vara og bæta
aðgengi formúlunnar inn í húðina
• Styður við kollagen fyrir fyllri ásýnd vara
• Nærir djúpt og dregur úr þurrki
• Styður við varnarlag húðar
• Klínískt prófaður
• Án ilmefna
• Rekjanleg innihaldsefni valin af ábyrgð
• Vegan
Notkunarleiðbeiningar
Notið yfir daginn og/eða sem síðasta skref í kvöldrútínunni
1. Notið áhaldið til að taka ríkulegt magn af vörunni
2. Berið jafnt lag á hreinar, þurrar varir og svæðið í kringum þær
3. Notið grófari hlið áhaldsins og rennið því mjúklega yfir varirnar og í kringum þær
4. Notið léttar strokur eða hringlaga hreyfingar í nokkrar sekúndur til að örva blóðflæði og
bæta aðgengi vörunnar
5. Leyfið vörunni að smjúga inn í húðina. Endurtakið eftir þörfum eða notið sem
næturmaska.







Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.