Vörulýsing
Endurnærðu hárið með Gloss.ME jólapakkanum. Sjampó, næring og leave-in sprey saman í pakka er tilvalin jólagjöf fyrir þá sem vilja mikinn raka og glans í hárið. Hentar fyrir allar tegundir af hári, milliþykkt og þykkt.
Notkunarleiðbeiningar
Bleytið hárið vel og dreifið sjampóinu jafnt í hárið. Nuddið hársvörðinn vel í 1–2 mínútur og skolið síðan úr hárinu.
Endurtakið þvottinn ef ykkur finnst hárið enn vera skítugt eða fitugt.
Eftir hárþvott skal kreista vatnið varlega úr hárinu til að fjarlægja sem mest af umframvatni. Dreifið næringunni í hárið með áherslu á miðlengdir og enda. Greiðið varlega úr hárinu með greiðu, bursta eða fingrunum. Látið næringuna virka í 1–2 mínútur og skolið síðan úr hárinu.
Spreyið leave-in-næringunni í handklæðaþurrt hár eða eftir þörfum.




Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.