Vörulýsing
Skemmtilegar harðvaxperlur í bangsalaga formi með sætum jarðarberja- og ferskjuilm. Vaxið harðnar á húðinni og því þarf enga vaxstrimla. Vaxið grípur bæði fín og gróf hár og fjarlægir þau frá rót. Hentar til notkunar bæði á andlit og líkama, meðal annars á fætur, handleggi og bikinísvæði. Vaxið þarf að hita í sérstökum örbylgjubolla frá Sliick eða vaxpotti. Vaxformúlan inniheldur meðal annars jojobaolíu, ólífuolíu, hveitikímolíu og E-vítamín sem hjálpa til við að mýkja og næra húðina. Pakkningin inniheldur tvær gerðir af vaxperlum, Strawberry og Peach.
Notkunarleiðbeiningar
Setjið æskilegt magn af vaxperlum í vaxhitara eða þar til gerðan örbylgjubolla. Hitið þar til vaxið hefur náð þykkri, karamellulíkri áferð og hrærið vel. Prófið ávallt hitastig vaxsins á litlu húðsvæði áður en það er borið á (gott að setja á innanverðan úlnlið). Húðin skal vera hrein og þurr og bestur árangur fæst þegar hárin eru um 6 mm eða lengri. Berið þykkt lag af vaxi á í vaxtarstefnu háranna. Látið vaxið kólna þar til það er orðið fast í sér en enn sveigjanlegt. Haldið húðinni strekktri og dragið vaxið af hratt og ákveðið gegn vaxtarstefnu háranna og samsíða húðinni.







Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.