Vörulýsing
Rakamaski sem hentar einstaklega vel fyrir viðkvæma húð. Varðveitir rakaforða húðarinnar, minnkar roða og jafna áferð. 20ml af Absolute Silk Cleansing Milk, 30ml af Absolute Silk Micro Mousse Wash og 30ml af Absolute Silk Micro Mousse Treatment fylgja með.
Comfort Barrier Mask – Þessi kremkenndi maski hjúpar húðina ósýnilegu varnarlagi sem róar hana samstundis. Nærandi eiginleikar maskans efla ysta lag húðarinnar, styrkja varnarlag og bæta eiginleika húðarinnar til að varðveita rakaforða, minnka roða og jafna áferð. Ilmur af Koishimaru-silki er ekki síður róandi fyrir öll skilningarvitin. Berið maskann í lok þinnar venjulegu húðrútínu og með reglubundinni notkun verður húðin nærðari, mýkri og sterkari.
Absolute Silk Cleansing Milk – Silkimjúk hreinsimjólk sem fjarlægir farða og önnur olíuleysanleg óhreinidi á mildan hátt.
Absolute Silk Micro Mousse Wash – Þétt froða sem inniheldur örfínar loftbólur sem eru umvafðar verndandi og rakagefandi innihaldsefnum. Virkar einstaklega vel til að fjarlægja vatnsleysanleg óhreinindi svo sem bakteríur, svita og dauðar húðfrumur.
Absolute Silk Micro Mousse Treatment – Laufléttri froða með örsmáum kolsýrðum loftbólum. Þær örva eðlilega starfsemi húðarinnar og veita henni silkimjúka áferð.
Notkunarleiðbeiningar
Comfort Barrier Mask – Notið spaðann sem fylgir með til að setja viðeigandi magn í höndina. Berið síðan yfir allt andlitið eftir að SENSAI rakakrem hefur verið borið á. Berið aukalag á svæði sem eru sérlega þurr og/eða gróf. Notist kvölds og morgna.
Absolute Silk Cleansing Milk – Setjið hæfilegt magn í bómullarskífu eða í lófann og dreifið varlega um allt andlitið. Þegar búið er að nudda vel og leysa upp farða og önnur óhreinindi skal strjúka vöruna varlega af með þurri pappírsþurrku eða bómullarskífu. Ekki er þörf á vatni. Notist á kvöldin eða þegar fjarlægja á farða.
Absolute Silk Micro Mousse Wash – Án þess að hrista flöskuna eða snúa henni á hvolf skal setja hæfilegt magn vörunnar í lófann og nudda varlega yfir allt andlitið. Forðist að bera á augnlok og augnsvæði. Skolið vandlega af með vatni. Notið á kvöldin eftir að búið er að fjarlægja farða og á morgnana.
Absolute Silk Micro Mousse Treatment- Notist undir krem, kvölds og morgna. Hristist ekki fyrir notkun. Nuddið vel á húðina. Fyrir allar húðgerðir.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.