Manstu hvenær byrjaðir þú að nota maskarann þinn? Eða hvenær þú keyptir þér nýtt púður? Við eigum það til að geyma snyrtivörur alltof lengi – og það getur verið hættulegt. Við gætum fundið eitthvað inn í skáp og munum ekkert hvenær við opnuðum það.
Málið er að allar snyrtivörur renna út – og oft fyrr en maður heldur. Þegar snyrtivörur verða útrunnar getur formúla vörunar breyst eða bakteríur byrja að byggjast upp í vörunni.
Um daginn birtist frétt um konu sem notaði margra ára gamlan maskara sem hún fann inn í skáp, fékk svo út frá honum sýkingu í augað og mun líklegast verða blind eftir nokkur ár. Vörur sem eru útrunnar geta nefnilega framkallað sýkingar og því ætti algjörlega að forðast að nota vörur sem eru gamlar. Útrunnar vörur geta framkallað allskyns vandamál og bólgur í húðinni, sem getur leitt að roða, bólum, útbrotum og jafnvel blöðrum og sýkingum.
Allar snyrtivörur eru skyldugar til þess að vera með PAO merki en það er lítil mynd á snyrtivörunni af opinni krukku sem á stendur hversu lengi vöruna má nota eftir opnun. Til dæmis getur staðið 3M eða 24M og stendur það þá fyrir að nota má vöruna í 3 mánuði og 24 mánuði eftir opnun.

Hvenær rennna vörurnar út
Eftir 6 mánuði
Svampar (þvegnir eftir hverja notkun)
Maskarar
Sólarvarnir
Michellar vötn
Andlitsvötn
Eftir 1 ár
Andlitshreinsar
Augnblýantar
Varalitir
Varablýantar
Augabrúnablýantar
Gloss
Gel eyeliner
Eftir 2 ár
Kinnalitir
Augnskuggar
Fljótandi farðar
Rakakrem
Púður
Hyljarar
Naglalökk
Ilmvötn duga í 8 – 10 ár
Þessi tímalengd er aðeins viðmið og alltaf skal kíkja á merkinguna á vörunni. Fylgjast skal með því ef varan hefur breytt um lit, áferð eða lykt og þá þarf að henda henni. Einnig þarf að passa að þvo alla förðunarbursta á nokkurra vikna fresti (eftir hvað þeir eru mikið notaðir) því að þeir fara ofan í förðunarvörurnar.
Nokkur góð ráð
- Skrúfaðu öll lok alltaf mjög vel á og passaðu að varan sé alveg lokuð.
- Geyma skal allar snyrtivörur á þurrum stað og ekki í beinu sólarljósi.
- Passaðu að varan sé ekki í of miklum hita eða kulda, og sérstaklega ekki í miklum raka.
- Ekki setja puttana ofan í dollurnar, notaði frekar spatúlu eða eyrnapinna. Olía af fingrum okkar og bakteríur geta borist í vöruna og getur eyðilagt hana.
- Ef varan er útrunnin en er í fallegum umbúðum og þú vilt eiga hana áfram – þá er það í góðu lagi, bara ekki nota hana. Það má jafnvel stilla vörunni upp á fallegum bakka inná baði
- Ekki deila förðunarvörum með öðrum nema að þær komi úr pumpu eða með því að nota spatúlu.
- Þegar þú kaupir þér nýja vöru, passaðu þá að opna hana ekki fyrr en þú ætlar að nota hana, þá endist hún lengur.
Margrét Magnúsdóttir er hár- og förðunarfræðingur, sem flutti til Íslands fyrir ári síðan eftir að hafa starfað í London í 6 ár. Margrét hefur starfað við allskonar skemmtileg verkefni eins t.d. og Vogue Online, Will.I.Am tónlistarmyndband, Topshop, BBC, tímarit og bíómyndir. Margrét er einnig eftirsótt í brúðkaupsfarðarnir en hún ferðast reglulega erlendis til þess að farða fyrir brúðkaup. Margrét hefur mikinn áhuga á húðumhirðu, hári, förðun og fallegum hlutum.
Hægt er að fylgjast með Margéti hér ♥:
Heimasíða : www.margretmagnus.com
Instagram: www.instagram.com/margretmagnus
Snapchat: @margretmagnus

Lee Stafford - CoCo LoCo & Agave Shine Sjampó 250ml
Azure Tan - Self Tan Mousse Organic Coconut 200ml
Clinique -Naturally Gentle Eye Makeup Remover
Ordinary - Soothing & Barrier Support Serum
Dr. Jart + - Cryo Rubber Brightening Mask
Ariana Grande Love Note Vanilla Suede EDP 125ml
Kaupauki Ariana Grande
Alessandro - Spa Hand Magic Man 2 Phase Handpeel
Lancaster - Sun Perfect Illuminating Cream SPF30
Kaupauki Lancaster
Essie - Mrs Always Right
Sisley Paris - Self Tanning Body Skincare
Kiss - Lash - Couture - Venus
Sisley Paris kaupauki Phyto Lip
Clarins - Multi-Active Glow Serum
Mádara - Deep Moisture Fluid
Clarins - Renew-Plus Body Serum
Clarins - Super Restorative Rose Radiance Cream - All Skin Types
Clarins - Men Wrinkle Smoothing Concentrate
Clarins - Sun Care Body Oil SPF30 150ml
Clarins - Super Restorative Day Cream - Very Dry Skin
Clarins - Contour Body Treatment Oil "Contouring/Strengthening"
Clarins - Sun Body Cream SPF30 150ml
Clarins kaupauki strandartaska
Clarins - Self Tanning Instant Gel
Clarins - Purifying Gentle Foaming Cleanser
Clarins - Sun Care Face Cream SPF30 50ml
Clarins - Self Tanning Milky Lotion
Clarins - Sun Body Water Mist SPF50+ 150ml
Clarins - Clarins Maternity Gift Set
Clarins - Sun Care Body Lotion SPF50+ 150ml
Clarins - Nutri-Lumière Day Cream
Shiseido - Benefiance Wrinkle Smoothing Cream Enriched
Clarins - Nutri-Lumière Night Cream
Shiseido Kaupauki
Clarins - Men Super Moisture Gel
Clarins - Men Line-Control Balm 