Vörulýsing
Fyrir alla sem upplifa roða í húð, tímbundið eða viðvarandi.
Þetta sérlega milda og olíulausa rakakrem er skref 2 í meðferðarkerfinu okkar gegn roða. Róar samstundis húð með sýnilegan roða – líka hjá þeim sem þjást af rósroða. Notaðu öll skrefin til að draga samstundis úr roða.
Þetta er það sem varan gerir: Dregur úr viðvarandi roða og flekkjum. Við langvarandi notkun fyllist húðin vellíðan og sprungnar háræðar verða minna sýnilegar.
Helstu innihaldsefni/tæknilausnir: Örverutæknin inniheldur einkaleyfisvarinn kjarna úr lactobacillus, sem er góðgerill sem sefar húðina, styrkir varnarhimnu húðarinnar, endurheimtir gerlajafnvægið og dregur úr ertingu. Sýnilegur roði minnkar tafarlaust þegar þú notar húðumhirðukerfi okkar gegn roða.
Besta leiðin til að ná tökum á roða er reglubundin húðumhirða með vörum sem valda ekki ertingu. Öll skrefin í Redness Solutions-kerfinu frá Clinique hafa sinn tilgang: Hreinsa, róa, verja.
Notkunarleiðbeiningar
Notaðu tvisvar á dag, kvölds og morgna. Berðu á ófarðaða húð. Forðastu augnsvæðið. ÁBENDING: Ef þú vilt draga enn frekar úr roðanum skaltu nota Redness Solutions Soothing Cleanser. Notaðu sólarvörn á hverjum degi – húð með tilhneigingu til roða gæti verið viðkvæmari fyrir sólinni.