Vörulýsing
Skref 2 í 3 Step rútínu Clinique er andlitsvatn.
Andlitsvatnið, sem er þróað af húðsjúkdómalæknum, slípar yfirborð húðarinnar, fjarlægir dauðar húðfrumur, mengun og önnur óhreinindi og gerir húðina bjartari og mýkri.
Formúlan sem er mild og frískandi er afar mikilvægt skref í því að halda húðinni í góðu jafnvægi.
Andlitsvatnið hjálpar til við að halda olíumyndun í skefjum og hjálpar einnig til við þurrk, með því að fjarlægja dauðar húðfrumur og undirbúa húðina betur að draga í sig raka.
Hentar: Þurri til venjulegri húð
Notkunarleiðbeiningar
Notið kvölds og morgna. Setjið andlitsvatnið í bómul og strjúkið létt yfir andlit og háls. Forðist augnsvæði og varir.