Vörulýsing
Kaffi og húðdekur í einu dásamlegu gjafasetti! You’ll Be Whipped Kit frá frank body inniheldur þrjá líkamsskrúbba sem hjálpa til við að fjarlægja dauðar húðfrumur, mýkja gróf húðsvæði og gefa húðinni fallegan ljóma.
Settið inniheldur hinn vinsæla Original Coffee Scrub ásamt tveimur léttum, þeyttum líkamsskrúbbum með kaffikeim og suðrænum kókosilm. Þeyttu skrúbbarnir eru með mjúka, kremkennda áferð sem gerir húðhreinsunina einstaklega notalega.
Vörurnar koma í fallegri, vatteraðri snyrtitösku sem nýtist vel undir snyrtivörur og aðra smáhluti.
Notkunarleiðbeiningar
Original Coffee Scrub: Berið á raka húð í sturtu og nuddið með hringlaga hreyfingum. Leggið sérstaka áherslu á gróf og þurr húðsvæði. Skolið vandlega af.
Express-o Whipped Body Scrub: Takið hæfilegt magn og nuddið varlega á raka húð með hringlaga hreyfingum. Skolið vandlega af.
Coconut Coffee Whipped Body Scrub: Berið á raka húð og nuddið með hringlaga hreyfingum til að fjarlægja dauðar húðfrumur. Skolið vandlega af.
Ráðlögð notkun: Notið einn skrúbb í einu, á 2–3 daga fresti. Forðist að nota á ert eða sködduð húðsvæði.







Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.