Vörulýsing
Dekraðu við húðina frá toppi til táar með Triple Shot Kit frá frank body! Gjafasettið inniheldur þrjár vinsælar vörur sem hjálpa til við að mýkja húðina, gefa vörunum raka og skilja eftir ljúfan ilm af vanillukaffi.
Original Coffee Scrub fjarlægir dauðar húðfrumur og hjálpar til við að slétta gróf húðsvæði. Original Lip Treatment inniheldur meðal annars kaffifræolíu og rakagefandi squalane sem næra og mýkja varirnar. Get Naked Hair & Body Mist fullkomnar svo dekrið með dásamlegum vanillukaffiilm.
Notkunarleiðbeiningar
Original Coffee Scrub: Berið á raka húð í sturtu og nuddið með hringlaga hreyfingum í nokkrar mínútur. Leggið sérstaka áherslu á gróf og þurr húðsvæði. Skolið vandlega af. Notið á 2–3 daga fresti.
Original Lip Treatment: Berið beint á hreinar varir eftir þörfum yfir daginn til að gefa vörunum raka og mýkt.
Get Naked Hair & Body Mist: Haldið flöskunni í 15–20 cm fjarlægð og úðið á hár eða húð, til dæmis háls, úlnliði og bringu. Endurtakið eftir þörfum.







Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.