Vörulýsing
Létt hreinsiolía sem leysir upp farða, sólarvörn og óhreinindi á mildan hátt án þess að þurrka húðina. Hún inniheldur nærandi plöntuolíur sem hreinsa djúpt, halda raka og skilja húðina eftir mjúka, slétta og í jafnvægi. Formúlan stíflar ekki svitaholur, breytist í mjólkurkennda áferð við snertingu við vatn og skolast auðveldlega af. Jafnframt styður hún við teygjanleika húðar með kollageni og hentar öllum húðgerðum, einnig viðkvæmri húð.
Notkunarleiðbeiningar
1 .Settu 4–5 pumpur af olíu í þurrar hendur.
2. Nuddaðu varlega á þurra húð í hringlaga hreyfingum, með áherslu á farða og sólarvörn
3. Bættu við smá volgu vatni og nuddaðu þar til olían breytist í mjólkurkennda áferð.
4. Skolaðu vel af með volgu vatni þar til engar leifar eru eftir.
5. Fylgdu eftir með kollagenhreinsi (maski sem freyðir) fyrir fullkomna tvöfalda hreinsun.







Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.