Vörulýsing
Checks and Balances Gentle Foaming Face Wash er mildur og léttur andlitshreinsir sem er hannaður til að mæta þörfum allra húðgerða. Formúlan byrjar sem ríkulegt krem sem breytist í mjúka og frískandi froðu. Hreinsirinn fjarlægir umframfitu og óhreinindi á húðinni, ásamt því að vernda hana gegn þurrki og veita raka á viðkvæmari svæðum húðarinnar. Frískandi ilmur af ilmkjarnaolíum, þar á meðal piparmyntu, skapar notalega, skynræna upplifun og húðin verður fersk, mjúk og þægileg viðkomu eftir hreinsun. Vörur frá Origins eru framleiddar án innihaldsefna af dýrauppruna (að undanskildum cruelty free hunangi og bývaxi).
Notkunarleiðbeiningar
Settu lítið magn (á stærð við baun) í lófann, bættu við volgu vatni og myndaðu froðu. Hreinsaðu andlitið og forðastu augnsvæðið. Skolaðu vandlega. Má nota á morgnana og kvöldin. Hreinsar húðina á mildan hátt.















Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.