Endurlífgaðu hárlitinn þinn með Color Beautifying Hair Care Mask

Þegar kemur að lúxushárumhirðu er Hair Rituel by Sisley Paris nafn sem stendur fyrir gæði og árangur. Color Beautifying Hair Care Mask er engin undantekning því maskinn endurnýjar og verndar hárlitinn þinn á sama tíma og hann nærir hárið alla leið upp í hársvörð. Hér er allt sem þú þarft að vita um þessa frábæru vöru og hvers vegna hún ætti að vera hluti af hárumhirðunni þinni.

Color Beautifying hármaskinn er sérstaklega hannaður fyrir litað hár, en hann nærir og verndar hárið og hársvörðinn, allt á meðan hárliturinn þinn helst fallegri lengur. Þú þarft aðeins að hafa hann í hárinu þínu í þrjár mínútur, og liturinn endist tvöfalt lengur. Hann er fullkominn fyrir þau sem lita hárið sitt reglulega og vilja tryggja að liturinn haldi lífskrafti sínum og lit og að hárið verði ekki þurrt eða skemmt.

Color Beautifying Hair Care Mask er eins og faðmur fyrir litað hár sem er orðið þurrt eða þreytt. Hann inniheldur sérstaka blöndu af nærandi og verndandi efnum sem vinna gegn slitum og gefa hárinu mýkt, glans og sveigjanleika svo það er auðveldara að meðhöndla það.

https://www.tiktok.com/@itshindou2/video/7268045453743197486?q=hair%20rituel%20color%20beautifying%20mask&t=1732742670208

Hvernig á að nota maskann?

Það er mjög einfalt að nota hann. Eftir að þú hefur þvegið hárið, seturðu maskann í blautt hárið. Byrjaðu í endunum og nuddaðu svo maskann varlega upp í átt að rótunum. Nuddaðu maskanum í vel hársvörðinn líka en hann er hannaður til þess að næra hann líka. Leyfðu maskanum að vinna sína töfra í 3 mínútur og skolaðu hann úr. Þú ræður svo hvort þú ljúkir sturtunni með hárnæringu líka, en það er þó ekki þörf á því. Af persónulegri reynslu þá virðist hárið verða smá stamt eftir maskann, en alls ekki örvænta því leið og þú ert komin úr sturtunni og greiðir í gegnum hárið þá finnur þú hversu mjúkt það er.

Hverjum hentar hann?

Þessi maski er fullkominn fyrir alla sem vilja að litað hárið þeirra haldist fallegt, glansandi og vel nært. Ef þú ert með hár sem er þurrt eða brotnar auðveldlega eftir litun, eða missir fljótt litinn, þá er þetta maskinn sem þú vilt prófa.  Ef þú vilt vera alveg viss um að liturinn endist sem lengst, þá mælum við með að skoða Revitalizing Color Perfecting Sjampóið með.

Afsláttarkóðinn INSTANT gefur 20% afslátt af öllum vörunum í Bleika Beautyboxinu út desember 2024.

-20%
Original price was: 16.390 kr..Current price is: 13.112 kr..
-20%
Price range: 2.712 kr. through 2.792 kr.
This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page
-20%
Original price was: 22.290 kr..Current price is: 17.832 kr..
-20%
Original price was: 3.590 kr..Current price is: 2.872 kr..
-20%
Original price was: 2.580 kr..Current price is: 2.064 kr..
-20%
Original price was: 5.690 kr..Current price is: 4.552 kr..

Fleiri vörur frá Hair Rituel by Sisley Paris sem við mælum með að skoða

-40%
Original price was: 12.490 kr..Current price is: 7.494 kr..
-20%
Original price was: 13.290 kr..Current price is: 10.632 kr..
-20%
Original price was: 15.790 kr..Current price is: 12.632 kr..
-20%
Original price was: 12.190 kr..Current price is: 9.752 kr..
-20%
Original price was: 15.490 kr..Current price is: 12.392 kr..
-20%
Original price was: 17.690 kr..Current price is: 14.152 kr..

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *