StylPro 4 in1 Spa Facial Steamer er gufutæki með sem hægt er að nota á 4 vegu:
Til þess að gufa á sér andlitið
Til að hita þvottapoka
Sem rakatæki fyrir þurr herbergi
Fyrir ilmolíur
Tækið er einfaldlega fyllt með vatni og stillt á þá styllingu sem þið viljið hverju sinni. Ólíkt öðrum gufutækjum þá gefur StylPro fíngerðari gufu sem gefur meiri raka en hefðbundin andlits gufutæki.
Til að gufa:
Stillið á andlitsgufu stillinguna. Bíðið eftir að ljósið verði blátt og gufan kemur eftir sirka 1 mínútu. Athugið hvernig hitastigið á gufunni er sirka 25 cm frá gufunni með hendinni áður en þið setjið andlitið yfir gufuna. Haldið andlitinu 25cm frá tækinu.
Til að hita handklæði:
Snúið hausinn af tækinu af. Brjótið þvottapokann saman og setjið inn í gufutækið. Setjið hausinn aftur á tækið og lokið. Setjið tækið í samband og kveikið á þvottapoka stillingunni og gufið þvottapokann í 2 mínútur. Skrúfið hausinn aftur á og takið þvottapokann úr með plokkara eða töng. Leyfið þvottapokanum að kólna þangað til hann er orðinn volgur og notið svo.
Til að nota sem rakatæki:
Fyllið tækið alveg að vatni og stillið á rakastillinguna. Rakatækið gengur í 40 mínútur.
Til að nota með ilmolíum:
Bætið örfáum dropum af ilmolíum í mælingarglasið sem fylgir með og hellið ofan í tækið. Lokið tækinu og bíðið eftir að ljósið verði blátt. Gufan kemur eftir 1 mínútu.