Vörulýsing
Perle de Soleil:
Perle de Soleil brúnkudroparnir frá MARC INBANE eru fullkomnir til að ná fram fallegum og heilbrigðum ljóma og náttúrulegri brúnku sem er sérsniðin að óskum hvers og eins. Brúnkudroparnir eru mjög auðveldir í notkun – þú einfaldlega blandar þeim saman við þitt eftirlætis rakakrem/líkamskrem eða í sólarvörnina þína og nærð þannig fram náttúrulegri brúnku. Brúnkudropana skal aðeins nota með nærandi kremi og mikilvægt er að fylgja notkunarleiðbeiningum. Brúnkudroparnir innihalda ekki SPF og veita því ekki vörn gegn skaðlegum geislum sólar. Mikilvægt er að þvo hendur eftir notkun. Aðeins ætlað til útvortis notkunar. Geymið þar sem börn ná ekki til.
La Hydratan:
MARC INBANE La Hydratan er lúxus rakakrem sem hentar til daglegrar notkunar á hreina húð. Það viðheldur eðlilegum raka húðarinnar og verndar húðina fyrir áreiti umhverfisins. La Hydratan dagkremið inniheldur Bronzyl® sem tryggir að húðin heldur lengur lit hvort sem er frá sól eða okkar náttúrulegu sjálfbrúnkuvörum. Innihaldsefnin Sheabutter, Hygroplex® og náttúrleg rakagefandi blanda (NMF, Natural Mousturizing factors) sjá til þess að húðin haldi fullkomnum raka og næringu sem gefur húðinni mýkt. La Hydratan inniheldur háþróaða UV vörn sem veitir húðinni vernd gegn skaðlegum geislum sólar og ótímabærri öldrun.
Náttúrulegu plöntuþykkni er bætt við vegna mýkjandi og róandi eiginleika þess og gefur það einnig jafna og fallega áferð. Rakakremið er án olíu og er ríkt af vítamínum, gefur húðinni meiri fyllingu og aukinn ljóma. Með notkun kremsins endurheimtir húðin sitt náttúrulega jafnvægi og heilbrigði. Hentar öllum húðgerðum, jafnvel þeim allra viðkvæmustu.
Kostir La Hydratan
Dagkrem sem lengir endingartíma brúnkunnar
SPF10 hjálpar til við að verja húðina gegn skaðlegum geislum sólarinnar og áreiti umhverfisins
Veitir vörn gegn ótímabærri öldrun
Sannreynt og prófað af húðlæknum
Vegan
Án parabena
Hentar öllum húðgerðum
Án olíu
Lofttæmdar umbúðir
Notkunarleiðbeiningar
Mikilvægt er að passa uppá að húðin sé hrein áður en þú berð kremblönduna á þig.
Settu það magn sem þú notar venjulega af rakakremi/líkamskremi eða sólarvörn í lófann. Blandaðu svo örfáum brúnkudropum saman við kremið og berðu blönduna jafnt á húðina. Til að viðhalda litnum notar þú 1-2 dropa en 3-4 dropa til að dekkja litinn.
Um merkið
MARC INBANE er hágæða hollenskt snyrtivörumerki sem framleiðir lúxus húðvörur með áherslu á brúnkuvörur og eru þau frumkvöðlar á sínu sviði.
Hrein innihaldsefni, faglegt handverk, fáguð útlitshönnun og fagmennska í öllu framleiðsluferlinu setur MARC INBANE í leiðandi stöðu í framleiðslu á hágæða snyrtivörum.
Stöðugur vilji okkar hjá MARC INBANE til að betrumbæta og þróa afurðir okkar gerir okkur kleift að vera í fremstu línu við að kynna nýjustu framfarir í heimi brúnkunnar. Vegna þessa hafa vörur okkar unnið til verðlauna um allan heim.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.