Vörulýsing
Hárskærin frá Jean Louis David Paris eru úr ryðfríu stáli. Löngu, beittu blöðin klippa hárið hreint og nákvæmlega, hvort sem þú ert að snyrta toppinn, laga enda eða klippa heima.
Skærin eru með fingurstoð, sem er sá krókur sem litli fingurinn hvílir á. Hún gefur betra jafnvægi og meiri stjórn, alveg eins og á skærum fagfólks.
Notkunarleiðbeiningar
Greiddu hárið vel og skiptu því í lokka.
Settu þumalfingur í annað gatið og baugfingur í hitt, og hvíldu litla fingurinn á fingurstoðinni.
Klipptu í smáum skrefum og taktu frekar minna en meira í einu.
Notaðu skærin eingöngu á hár, því pappír og önnur efni gera blöðin bitlaus.
Þurrkaðu skærin eftir notkun og geymdu þau á þurrum stað.




Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.