Vörulýsing
Zebra naglaþjölin frá Jean Louis David Paris er öflug þjöl með grófleika #150 á báðum hliðum. Hún er fljótvirk og hentar vel til að stytta neglur og móta þær, sérstaklega þykkar eða sterkar neglur, táneglur og gervineglur.
Þjölin er í premium gæðum, má þvo og endurnýta, og endist því lengi. Breiða, tígullaga lögunin fer vel í hendi og gefur gott grip.
Notkunarleiðbeiningar
Notaðu þjölina á þurrar neglur.
Þjalaðu í eina átt, frá hlið nöglarinnar inn að miðju.
Þar sem þjölin er gróf er gott að fara varlega og athuga lögunina reglulega.
Ef þú vilt fínpússa brúnina á eftir er gott að nota fínni þjöl.
Þvoðu þjölina með volgu vatni og sápu og leyfðu henni að þorna vel.




Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.