Vörulýsing
Matt púður með léttri þekju sem jafnar áferð húðarinnar. Það dregur úr sýnileika ójafna og hjálpar til við að halda glans og umfram olíu í skefjum í allt að 12 klukkustundir. Litirnir í Matte Powder Veil línunni eru sveigjanlegir svo auðvelt er að finna sinn rétta lit og undirtón. Púðurkvasti sem er sérstaklega hannaður til að auðvelda ásetningu fylgir með púðrinu.
Notkunarleiðbeiningar
Notaðu púðurkvastann sem fylgir með til að þrýsta eða dúmpa púðrinu létt yfir húðina. Notaðu það magn sem hentar þér; byrjaðu á litlu magni og bættu við eftir þörfum. Pressað púður hentar vel sem lokaskref í förðuninni eða til að fríska upp á hana yfir daginn. Púðurdósin er nett og þægileg til að hafa með sér á ferðinni.



















Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.