Vörulýsing
Cleanse & Mask Set er gjafasett sem inniheldur þrjár vinsælar Origins húðvörur fyrir kvöldrútínuna ásamt hárbandi.
Settið inniheldur:
• Clear Improvement™ Active Charcoal Mask to Clear Pores, 30 ml: Djúphreinsandi andlitsmaski sem hjálpar til við að draga úr óhreinindum sem geta stíflað svitaholur og fjarlægja umfram fitu af húðinni.
•Drink Up™ Intensive Overnight Hydrating Mask, 30 ml: Rakagefandi næturmaski sem veitir þurri húð mikinn raka í allt að 72 klukkustundir og hjálpar til við að halda húðinni mjúkri og sléttri. Maskann má einnig nota á hendurnar.
•Checks and Balances™ Frothy Face Wash, 50 ml: Vinsælasti andlitshreinsir Origins sem hreinsar húðina og skilur hana eftir hreina og fríska.
•Hárband: Mjúkt hárband sem auðvelt er að setja á og heldur hárinu frá andlitinu á meðan húðumhirðan fer fram.
Notkunarleiðbeiningar
Clear Improvement™ Active Charcoal Mask to Clear Pores: Leggið heitt, rakt handklæði á andlitið til að undirbúa húðina og berið síðan maskann á. Látið hann þorna og skolið af. Notið einu sinni í viku eða eftir þörfum.
Drink Up™ Intensive Overnight Hydrating Mask: Berið þunnt lag á hreina húð fyrir svefn tvisvar í viku eða eftir þörfum. Til að nota sem rakagefandi handamaska, nuddið þunnu lagi á hendurnar og látið þorna.
Checks and Balances™ Frothy Face Wash: Setjið magn á stærð við baun í lófann og bætið volgu vatni við. Nuddið vörunni á húðina þar til hún freyðir og forðist augnsvæðið. Skolið vandlega af.









Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.