Vörulýsing
Hin fullkomna gjöf til að kynnast Blue Lagoon Skin Science. Tvennan inniheldur okkar vinsælustu vörur, Silica Mud Mask og BL+ The Serum, sem hreinsa, næra og draga fram ljóma húðarinnar. Formúlurnar byggja á lífvirkum innihaldsefnum Bláa Lónsins og yfir 30 ára húðrannsóknum.
Settið inniheldur: BL+ The Serum (5 ml) og Silica Mud Mask (10 g)
SETTIÐ INNIHELDUR
BL+ The Serum
Öflug formúla sem gefur húðinni góðan raka og bjartara yfirbragð, ásamt því að draga úr öldrunareinkennum húðar.
Silica Mud Mask
Hinn margrómaði hvíti andlitsmaski sem djúphreinsar og styrkir húðina. Gefur frísklegt yfirbragð og dregur úr sýnileika svitahola.
BL+ COMPLEX™ örvar nýmyndun kollagens, dregur úr niðurbroti kollagens og styrkir varnarlag húðarinnar.
BL+ SILICA™ – kísil Bláa Lónsins,hefur djúphreinsandi og náttúrulega leireiginleika sem draga óhreinindi úr húðinni og bæta yfirbragð hennar.
BL+ MICROALGAE™ – örþörungar Bláa Lónsins, hafa nærandi, andoxandi og endurnýjandi eiginleika. Einkaleyfisvarðir örþörungarnir finnast í einstöku vistkerfi Bláa Lónsins en þeir örva, varðveita og vernda kollagenforða húðarinnar.
BL+ MINERALS™ – jarðsjór Bláa Lónsins, endurnærir húðina með nauðsynlegum steinefnasöltum og eykur þannig heildarvirkni formúlunnar.
Notkunarleiðbeiningar
• Berið Silica Mud Mask ríkulega jafnt á hreina húð. Forðist augnsvæðið. Látið bíða á húðinni í 5-10 mínútur. Skolið af með volgu vatni. Notið 2-3 sinnum í viku.
• Berið BL+ The Serum á hreint andlit og háls. Þrýstið létt inn í húðina. Berið það sem eftir er af seruminu á hálsinn með léttum strokum upp á við.




Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.