Vörulýsing
Gefðu húðinni þá umhyggju sem hún á skilið á köldustu mánuðum ársins. Þetta takmarkaða sett inniheldur okkar helstu rakagjafa ásamt fallegum aukahlutum fyrir dekurstundir vetrarins. Formúlurnar byggja á lífvirkum innihaldsefnum Bláa Lónsins og yfir 30 ára húðrannsóknum.
Settið inniheldur: Mineral Mask (75 ml), Lip Balm (10 ml), Maskalykill, Blá snyrtitaska
SETTIÐ INNIHELDU
Mineral Mask
Rakagefandi andlitsmaski sem inniheldur lífvirkan og steinefnaríkan jarðsjó Bláa Lónsins. Léttur gelmaski sem veitir húðinni öflugan raka og gerir húðina mýkri og ljómandi.
Lip Balm
Næringarríkur varasalvi sem verndar og mýkir varirnar samstundis auk þess að innsigla raka. Varirnar fá fyllri og sléttari ásýnd.
Maskalykill
Lykillinn að því að kreista hvern einasta dropa úr áltúbum okkar. Rennið þessum snúningslykli á áltúbuna og snúið þar til hann hjálpar við að ná vörunni út auðveldlega.
Blá snyrtitaska
Falleg snyrtitaska sem hönnuð er til að geyma þínar helstu húðvörur, heima eða á ferðalagi
Lykilefni
BL+ COMPLEX™ örvar nýmyndun kollagens, dregur úr niðurbroti kollagens og styrkir varnarlag húðarinnar.
BL+ SILICA™ – kísil Bláa Lónsins. hefur djúphreinsandi og náttúrulega leireiginleika sem draga óhreinindi úr húðinni og bæta yfirbragð hennar.
BL+ MICROALGAE™ – örþörungar Bláa Lónsins, hafa nærandi, andoxandi og endurnýjandi eiginleika. Einkaleyfisvarðir örþörungarnir finnast í einstöku vistkerfi Bláa Lónsins en þeir örva, varðveita og vernda kollagenforða húðarinnar.
BL+ MINERALS™ – jarðsjór Bláa Lónsins, endurnærir húðina með nauðsynlegum steinefnasöltum og eykur þannig heildarvirkni formúlunnar.
Notkunarleiðbeiningar
Berið Mineral Mask ríkulega og jafnt á hreina húð. Forðist augnsvæðið. Látið maskann liggja á húðinni í 5-10 mínútur. Skolið af með volgu vatni. Notist eftir þörfum þegar húðin er þurr eða þarfnast raka.
Berið Lip Balm á varirnar daglega eða eftir þörfum til að næra, mýkja og verja þær frá þurrki.




Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.