Vörulýsing
Titringur kallar fram teygjuviðbragð í líkamanum með hröðum og kröftugum vöðvasamdrætti sem flýtir fyrir styrktarþjálfun og líkamsmótun. Meðal ávinnings er styrking og stinning vöðva, vinna með kjarnann og aukinn stöðugleiki og æfingarnar taka á öllum helstu vöðvahópum: kviði, rassvöðvum, lærum, handleggjum, brjósti og baki. Með mörgum titringshraðastillingum og innbyggðum tímastilli getur þú sniðið æfingaprógrammið að þér og nærð stæltari og sterkari líkama á styttri æfingum.
Kostir:
-Æfingar á titringsplötu virkja stöðugleika vöðva líkamans enn frekar og auka vöðvasamdrætti, sem leiðir til ákafari og árangursríkari æfingar.
– Brenndu fitu og styrktu vöðvana með stuttum 1–20 mínútna æfingum. Aðeins nokkrar mínútur á dag geta hjálpað þér að ná sterkari og betri líkamsbyggingu og auka árangurinn af hverri æfingu.
– Æfing fyrir allan líkamann – titringsæfingapallurinn virkjar alla helstu vöðvahópa líkamans. Með fylgja mótstöðubönd fyrir efri hluta líkamans og ítarlegar æfingaleiðbeiningar svo þú fáir sem mest út úr æfingunum.
Eiginleikar:
– Fimm æfingarplön og 99 hraðastillingar – auktu styrk og liðleika með því að velja eina af forstilltu áætlununum eða stilltu á handvirkt og þú velur hvað þú vilt.
– Handhæg fjarstýring og einfaldur snertiskjár – engin fyrirhöfn við ruglingslega takka sem erfitt er að ná til; haltu einfaldlega á fjarstýringunni á meðan þú æfir eða hafðu hana innan seilingar. LCD-skjárinn er líka vel læsilegur úr fjarlægð.
– Nettur og fer lítið fyrir – pallurinn er með útdraganlegu handfangi og hjólum, er fyrirferðarlítill og auðvelt er að renna honum þangað sem þú vilt hafa hann, sem gerir hann tilvalinn þar sem plássið er lítið.
– Teygjusnúrur fyrir æfingar á efri hluta líkamans.
– Tengist snjallsímum svo þú getur spilað tónlist í innbyggðum hátölurum.
– Hannaður til að lágmarka titring niður í gólfið og því tilvalinn í fjölbýli.
– Stamir gúmmífætur.
– Hámarksþyngd notanda: 120 kg.
– Mál: 11,5 cm (h) x 35 cm (d) x 52 cm (b) – þyngd 9 kg.
Innihald:
– Whole Body Vibration Training Plate
– 2 teygjusnúrur með haldföng
– Fjarstýring
– Æfingahandbók
– 2 ára ábyrgð
Myndband:









































Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.