Vörulýsing
MICRO MOUSSE TREATMENT er einstök, loftkennd froða með fíngerðum kolsýrðum örbólum og Koishimaru Silk EX. Háþróuð formúlan vinnur gegn sýnilegum ummerkjum öldrunar. Ný Micro Bubble Density Technology myndar fleiri örbólur sem smjúga inn í húðina, örva blóðflæði hennar og styðja við náttúrulega endurnýjun húðarinnar.
Rakagefandi froðan fyllir húðina raka og hjálpar til við að gera hana stinnari og ljómandi, um leið og áferð hennar verður sléttari og fínlegri. Húðin öðlast aukinn styrk og verður silkimjúk með fersku og endurnærðu yfirbragði.
MICRO MOUSSE TREATMENT undirbýr húðina fyrir áframhaldandi húðumhirðu og er fyrsta þrep í tvöfaldri rakagjöf SENSAI. Notist á hreina húð kvölds og morgna.
Notkunarleiðbeiningar
Notist kvölds og morgna á hreina húð sem fyrsta þrep í tvöfaldri rakagjöf SENSAI. Hristið ekki brúsann fyrir notkun. Haldið honum uppréttum og setjið hæfilegt magn af froðu í lófann. Dreifið froðunni mjúklega yfir allt andlitið og þrýstið henni varlega inn í húðina. Haldið síðan áfram með venjubundna húðumhirðu.
Sem sérstaka meðferð má bera aukamagn af froðunni, um 3 cm í þvermál, á þau svæði sem þarfnast aukinnar umhirðu, til dæmis undir augun. Látið froðuna liggja á húðinni í um eina mínútu og þrýstið henni síðan varlega inn í húðina.














Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.