Vörulýsing
Rakakrem og farðagrunnur í sömu vöru, nú í uppfærðri formúlu. Vítamínblandan inniheldur fimm sinnum meira af vítamínum en áður til að veita húðinni enn meiri raka. Húðin fær heilbrigðara yfirbragð, farðinn endist betur og morgunrútínan verður aðeins notalegri þökk sé silkimjúkri áferð og 100% náttúrulegum ilmi af greipaldin og blágresi. Kremið hjálpar til við að koma í veg fyrir að farði kekkist, setjist í fínar línur, flagni eða dofni yfir daginn. Formúlan inniheldur nú einnig asetýl glúkósamín sem hjálpar til við að mýkja og slétta húðina og skapa kjöraðstæður fyrir fallegan og endingargóðan farða í allt að 24 tíma.
Notkunarleiðbeiningar
Settu perlustærð af vörunni á fingurgómana og þrýstu kreminu varlega á nýhreinsaða húð fyrir aukinn raka og frísklegra yfirbragð. Notaðu vöruna sem fyrsta skrefið í förðunarrútínunni þinni, eða sem síðasta skrefið í húðumhirðurútínunni. Paraðu hana við Vitamin Enriched Eye Base til þess að undirbúa húðina fyrir farða.






















Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.