Vörulýsing
Taktu náttúrulega fegurð þína upp á næsta stig og fáðu sólkysst áhrif með SHISEIDO TANNING COMPACT FOUNDATION SPF10.
FEGRAÐU HÚÐ ÞÍNA.
Þessi húðfegrandi farði veitir náttúrulega þekju til að jafna út húðtón, sýnilegar svitaholur og fínar línur. Veitir náttúrulega og lýtalausa gyllta áferð þar sem formúlan þolir svita, vatn og húðfitu.
VERNDAÐU HÚÐ ÞÍNA
- Verndaðu húðina gegn skemmdum af völdum mengunarefna til að framkalla náttúrulegan ljóma og líflegt yfirbragð með „NatureSurge Complex“*
- Komdu í veg fyrir húðskemmdir tengdar hrukkumyndun og ójöfnum húðtóni með „Profense CEL™“-tækni*
- Veitir milda vörn gegn UVA- og UVB-geislum og hjálpar til við að draga úr ótímabærum öldrunarmerkjum með „Superveil-UV 360™“*
*Próf á tilraunastofu
NÆRÐU HÚÐINA
Sameinaðu nærandi og sléttandi áhrif safflúr með rakagefandi krafti lífvirkrar hýalúrónsýru.
NÝJAR ÁFYLLANLEGAR UMBÚÐIR
Vertu með í skuldbindingu okkar um sjálfbærni og veldu ábyrgari nálgun. Minnkaðu plastnotkun um 85% með því að kaupa aðeins áfyllingu.
Stíflar ekki húðholur. Prófað af húðlæknum.
Notkunarleiðbeiningar
Berið á eftir venjulegri húðumhirðu.
Til að fjarlægja skaltu hreinsa andlitið vandlega með farðahreinsi.
Notaðu þurran eða rakan svamp, strjúktu honum létt yfir yfirborð farðans og berðu svo jafnt yfir allt andlitið, frá miðju og út á við.
Byrjaðu á því að bera á stærri svæði eins og kinnar og notaðu afganginn í svampinum fyrir smærri svæði eins og enni, nef og í kringum augu og munn fyrir fallega og náttúrulega áferð.
ATHUGIÐ
Mælt er með að nota sólarvörn með mikilli vörn sem farðagrunn þegar húðin verður fyrir sterkum sólargeislum yfir lengri tíma.
Fyrir lagfæringar þá skaltu þurrka létt svita, vatn og olíu af húðinni og svo þrýsta litlu magni af farða yfir tiltekin svæði.
Vinsamlegast haltu svampinum hreinum þar sem óhreinn svampur tekur ekki vel upp farðann.
Þegar svampurinn er orðinn óhreinn skaltu þynna hlutlaust þvottaefni í volgu vatni og þrýsta honum í það til að þvo hann. Hreinsaðu vel svo ekkert þvottaefni sé eftir í honum. Kreistu vökvann úr svampinum áður en þú þurrkar hann í skugga.
Forðist snertingu við augu. Ef snerting á sér stað skal skola augun vandlega með vatni.
Geymið fjarri beinu sólarljósi og háum hita og raka.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.