Vörulýsing
Askjan undir TOTAL FINISH er seld sér, hulstrið fæst HÉR
Frábæri grunnfarðinn okkar hefur verið uppfærður og er nú enn þægilegri og náttúrulegri. TOTAL FINISH færir þér silkimjúkan raka með einni stroku af þessu fíngerða og vandaða púðri. Háþróuð blanda úr sérmeðhöndluðu dufti tryggir að púðrið er alltaf slétt, mjúkt og kornalaust, með nægilega mikilli þekju til að náttúruleg fegurð húðarinnar njóti sín. Þetta er silkimjúk og létt blanda sem leyfir húðinni að anda og líða dásamlega vel með auknum raka.
TOTAL FINISH smýgur hindrunarlaust inn í húðina með einni léttri stroku og ljær henni ferskleika og náttúrulegan hreystiljóma. SILKIMJÚK HÚÐ er húðin þín, bara enn fallegri og mýkri.
Notkunarleiðbeiningar
Til að ná jöfnum og geislandi ljóma mælum við með því að þú notir farðagrunn, til dæmis Glowing Base. Notaðu farðasvampinn sem fylgir með til að bera TOTAL FINISH á.
Gættu þess að nota lítið í einu, til að náttúruleg fegurð húðarinnar fái að skína í gegn.
Hvernig á að fylla á TOTAL FINISH: Settu áfyllinguna varlega í öskjuna utan um vöruna. Gættu þess að beita ekki óþarfa afli við þetta til að púðurmassinn haldist heill.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.